Erlent

Sat saklaus í fangelsi í 21 ár

Hinn 43 ára Maurice Caldwell, sem setið hefur í fangelsi í Kaliforníu í 21 ár, hefur verið látinn laus. Sakfellingardómi hans var snúið við á síðasta ári.

Saksóknarar vildu láta rétta yfir Caldwell aftur en dómari úrskurðaði á föstudag að hann skyldi látinn laus þar sem sönnunargögnum hefði verið eytt. Dómari áréttaði að Caldwell skyldi njóta réttlátrar málsmeðferðar. Caldwell var sakfellwdur fyrir morð á Judy Acosta og fjölskylda hennar trúir enn að Caldwell sé sekur. - mmf




Fleiri fréttir

Sjá meira


×