Innlent

Stal tíu sinnum af reikningi

Tæplega fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir þjófnað. Meðal annars stal hann tíu sinnum af sama bankareikningi, samtals ríflega 138 þúsund krónum, en hann hafði komist yfir bankakort eiganda reikningsins, svo og leyninúmer.

Manninum er einnig gefið að sök að hafa stolið fatnaði af þvottasnúru í fjölbýlishúsi, þar sem hann tók einnig reiðhjól ófrjálsri hendi og hjólaði á því um nágrennið.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×