Innlent

Félagsmenn fá afmælisgjafir

Aðalsteinn Baldursson er formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Baldursson er formaður Framsýnar.
Félagsmenn í Framsýn stéttarfélagi fá tíu þúsund króna gjöf frá félaginu í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Gjöfina má nota til að greiða ýmsan útlagðan kostnað.

Kostnaður félagsins við þetta eru um 22,5 milljónir króna. Í tilkynningu frá Framsýn segir að góður rekstur félagsins tryggi þessa veglegu gjöf.

Hægt er að nota gjöfina til að greiða fyrir sjúkraþjálfun, gleraugnakaup, heilsueflingu, orlofshús og ýmislegt annað.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×