Scott skoðar Ísland fyrir geimverumynd 30. apríl 2011 00:00 Geimtryllir Prometheus er geimtryllir og er Ridley Scott að skoða hvort Ísland henti sem tökustaður fyrir myndina. Myndin skartar Noomi Rapace í aðalhlutverki en hún hóf leikferil sinn í kvikmynd eftir Hrafn Gunnlaugsson.
Breski kvikmyndagerðarmaðurinn Ridley Scott er staddur hér á landi til að skoða heppilega tökustaði fyrir vísindaskáldverkið Prometheus, stórmynd sem innblásin er af kvikmyndinni Alien frá 1979. Tökur á myndinni eru þegar hafnar í Marokkó. Scott lenti á Reykjavíkurflugvelli í gærdag á einkaflugvél ásamt hópi framleiðenda. Á flugvellinum tók á móti þeim starfsfólk frá framleiðslufyrirtækinu True North. Hópurinn steig beint upp í þyrlu sem flaug með hann yfir álitlega tökustaði í nágrenninu. Í dag heldur hersingin til Akureyrar, þar sem fleiri tökustaðir verða skoðaðir.Noomi leikur í myndinni.Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Scott sýnir Íslandi áhuga því samkvæmt vefsíðunni imdb.com hyggst hann gera kvikmynd um leiðtogafundinn í Reykjavík. Samkvæmt skoskum fréttasíðum stendur til að hefja tökur á myndinni í skosku hálöndunum í ágúst og september á þessu ári. Svo verður farið í aðrar tökur við önnur evrópsk fjallasvæði í október og nóvember og kemur Ísland þá væntanlega til greina í þær tökur. Ridley Scott er einn af virtustu leikstjórum Hollywood og hefur gert kvikmyndir á borð við Black Hawk Down, American Gangster og Gladiator. Ef Scott ákveður að taka hluta myndarinnar upp hér á landi gæti það þýtt að Noomi Rapace, sem lék Lisbeth Salander í Millennium-þríleiknum, endurnýi kynni sín við Ísland, því hún leikur aðalhlutverkið í Prometheusi. Rapace átti heima á bóndabæ á Flúðum í barnæsku og lék í sinni fyrstu kvikmynd hér á landi undir stjórn Hrafns Gunnlaugssonar.- fgg
Mest lesið Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Erlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Fleiri fréttir Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Sjá meira