Mladic náðist fyrir tilviljun 28. maí 2011 05:30 Ratko Mladic var vakandi þegar lögregluna bar að garði klukkan fimm að morgni. Mynd/AFP
Þegar hópur lögreglumanna réðst inn í íbúðarhús í bænum Lazareva klukkan fimm á fimmtudagsmorgun vissu þeir ekki hvort Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmaður herliðs Bosníu-Serba, væri þar staddur. Lögreglumennirnir gerðu samtímis leit í fjórum íbúðarhúsum þar í þorpinu, en sams konar leit hafa þeir gert reglulega síðustu fjögur árin víðs vegar um Serbíu í von um að rekast á þennan 69 ára gamla mann, sem eftirlýstur er fyrir verstu stríðsglæpi Evrópu síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Þrír lögreglumenn, sem ræddu við fréttastofuna AP, sögðu Mladic strax hafa viðurkennt hver hann væri, hálfhvíslandi að vísu. Hann hafi verið fölur og ellilegur, með tvær skammbyssur á sér en afhenti þær lögreglunni umyrðalaust. Mladic var vakandi þegar lögregluna bar að garði, þótt flestir þorpsbúar hafi verið í fastasvefni. Hann hafði átt erfitt með að sofa vegna verkja í líkamanum, sem hafa hrjáð hann lengi. Hann hefur verið í felum hjá ættingjum sínum í þessu þorpi í tvö ár, taldi sig nokkuð öruggan þar. Serbnesk stjórnvöld höfðu heitið rúmlega 1.100 milljónum í fundarlaun hverjum þeim sem gæti vísað lögreglunni á Mladic, en enginn fær þau verðlaun vegna þess að lögreglan hafði enga vísbendingu fengið um að hann gæti leynst þarna.- gb
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Tók þátt í mótmælum þrátt fyrir hótun Maduro um handtöku Tugir hægriöfgamanna handteknir í óeirðum í Bretlandi Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Sjá meira