Innlent

Lögregla gerir dauðaleit að banvænu dópi

Lögregla leggur nú allt kapp á að rekja uppruna og dreifingarleiðir fíkniefnisins PMMA, sem grunur leikur á að hafi dregið tvítuga stúlku til dauða á laugardagsmorgun.

Stúlkan var stödd í samkvæmi hjá kunningja sínum þegar hún lést. Hún hafði neytt fíkniefna. Dánarorsök liggur ekki fyrir en í ljósi þess að PMMA hafði fundist í fyrsta sinn á Íslandi fyrr í apríl, í fórum manns í Borgarnesi, beindist grunur strax að því. Lögregla handtók fjóra á staðnum og lagði hald á fíkniefni.

Á laugardagskvöld var leitað í tveimur húsum til viðbótar og fleiri handteknir. Lögregla hélt áfram að rekja sig eftir viðskiptaslóðinni og gerði þriðju húsleitina í gær.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fannst nokkurt magn fíkniefna á öllum fjórum stöðunum, þar á meðal hvítt efni sem við fyrstu sýn virðist vera amfetamín en ekki er hægt að útiloka að sé umrætt PMMA. Efnið hefur verið sent Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum til greiningar. Hún getur tekið nokkurn tíma.

Meira en tugur manna hefur verið handtekinn og yfirheyrður vegna rannsóknarinnar, meðal annars áðurnefndur Borgnesingur á laugardagskvöld. Síðdegis í gær hafði hins vegar öllum verið sleppt úr haldi.

Heimildir Fréttablaðsins herma að mikil áhersla sé lögð á það að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu efnisins. Talsvert lögreglulið hafi unnið að því myrkranna á milli alla helgina og svo verði áfram á meðan af því er talin steðja hætta.

Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, segir lögreglu óttast mjög að meira af efninu sé í umferð. Hann segir ómögulegt að vita hvort innflytjendur og sölumenn efnisins viti sjálfir hversu hættulegt efnið er. „En maður ætlar svo sem engum að dreifa svona efnum vitandi að þau kunni að vera eitruð,“ segir hann. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um rannsóknina í gær.- sh, jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×