Menning

Gefa saman út Regnboga

Guðjón Rúdolf og Þorkell Atlason hafa gefið út nýja plötu.
Guðjón Rúdolf og Þorkell Atlason hafa gefið út nýja plötu.
Platan Guðjón Rúdolf – Regnbogi kemur út í dag. Hún er samvinnuverkefni þeirra Guðjóns Rúdolfs Guðmundssonar og Þorkels Atlasonar. Áður hafa þeir gefið út plöturnar Minimanu og Þjóðsöng.

Þrennir tónleikar verða haldnir í tilefni útgáfunnar, á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði í kvöld, Hafnarhúsinu annað kvöld og á Bar 46 á sunnudag. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21. Hljómsveitin Dularfulla stjarnan leikur á tónleikunum. Hana skipa, auk Guðjóns og Þorkels, þeir Júlíus Ólafsson, Árni Kristjánsson, Eiríkur Stephensen, Björn Erlingsson og Bjarni Friðrik Jóhannesson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.