Menning

Á ferð um Köben

Sigrún Gísladóttir. Fréttablaðið/Vilhelm
Sigrún Gísladóttir. Fréttablaðið/Vilhelm
Sigrún Gísladóttir, sem búsett var í Kaupmannahöfn um árabil, hefur gefið út bók um borgina, Kaupmannahöfn – Í máli og myndum.

„Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn byrjaði ég af tilviljun að taka hópa í göngu um borgina," segir Sigrún, sem í framhaldinu fékk meiri áhuga á Kaupmannahöfn. Hún segir að bókin sé að hluta til byggð á gögnunum. „Ég flétta saman staðreyndum sem fólk sér og sögunni aftur í miðaldir. Ég tek það sem mér finnst áhugaverðast, ekki síst fyrir Íslendinga."

Að sögn Sigrúnar byrjar hún á að kynna fólki hvernig það kemst til borgarinnar en tekur síðan miðkjarna hennar fyrir. „Ég segi fólki frá ráðhúsinu og því sem þar er um kring. Svo fer ég um elsta hluta borgarinnar í háskólahverfinu en þar lifðu og störfuðu okkar frægu menn," segir Sigrún.

„Ég fer yfir að Sívalaturni, á Strikið og að Kóngsins Nýjatorgi. Ég fjalla um Norðurbryggju, Christianshavn og Amalienborg þar sem höllin er. Ég fer líka yfir að Jónshúsi og geri því góð skil," upplýsir Sigrún og bætir við að einnig fari hún lengra í burtu þar sem hægt sé að finna eitthvað fyrir barnafjölskyldur.

martaf@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×