Erlent

Ætla að ná arftaka bin Ladens

Ayman Al-Zawahiri er tekinn við af Osama bin Laden. nordicphotos/AFP
Ayman Al-Zawahiri er tekinn við af Osama bin Laden. nordicphotos/AFP
Bandaríkjamenn ætla að leita uppi Ayman al Zawahiri, arftaka hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden, þótt Robert Gates varnarmálaráðherra segi hann ekki jafnmikilvægan.

„Rétt eins og við bæði reyndum að hafa hendur í hári bin Ladens og tókst að drepa hann munum við örugglega gera slíkt hið sama við Zawahiri,“ sagði Mike Mullen, yfirmaður bandaríska herráðsins.

Bandarískur dómari samþykkti í gær að fella niður ákærur á hendur bin Laden, enda er hann ekki lengur á lífi.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×