Laus úr haldi en ákærur óbreyttar 2. júlí 2011 03:45 Dominique Strauss-Kahn var brosmildur þegar hann yfirgaf dómhúsið í New York ásamt eiginkonu sinni, Anne Sinclair. Mynd/AP
Dómari í New York ákvað í gær að Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, fái að fara frjáls ferða sinna. Hann fær þó ekki að fara úr landi. Strauss-Kahn hafði verið haldið í stofufangelsi í New York með ströngum skilyrðum síðan um miðjan maí, ákærður fyrir að hafa reynt að nauðga þernu á hótelherbergi í sömu borg þann 14. maí. „Þetta er mikill léttir,“ sagði William Taylor, lögmaður Strauss-Kahns, og sagði þetta mál sýna hve auðvelt sé að ásaka fólk um alvarlega glæpi. „Það er svo mikilvægt í þessu landi að fólk, og þá sérstaklega fjölmiðlar, felli ekki dóm fyrr en allar staðreyndir liggja fyrir.“ Dómarinn sá ekki ástæðu til að fella niður ákærurnar á hendur Strauss-Kahn. Svo virðist sem saksóknarar í málinu telji ákærurnar þó ekki jafn skotheldar og í fyrstu var talið. Við rannsókn málsins kom í ljós að þernan laug að einhverju leyti til um atburðarásina. Meðal annars reyndist ekki rétt að hún hafi strax látið yfirmann sinn vita um að Strauss-Kahn hefði reynt að nauðga henni, eins og hún þó fullyrti við lögreglu í fyrstu. Þá reyndist hún hafa sagt ósatt um fortíð sína þegar hún sótti um hæli í Bandaríkjunum. Meðal annars hafði hún ekki skýrt rétt frá þegar hún sagði að sér hefði verið nauðgað í heimalandi sínu, Gíneu. Ken Thompson, lögmaður þernunnar, svaraði allri gagnrýni á hana fullum hálsi. „Það er ljóst að konan gerði einhver mistök, en það þýðir ekki að hún sé ekki fórnarlamb nauðgunar,“ sagði Thompson. Hann sagði hana hafa komið til Bandaríkjanna vegna þess að hún hafi orðið fyrir limlestingu kynfæra. Hún hafi haft áhyggjur af því að slíkt hið sama yrði gert við dóttur hennar, sem nú er fimmtán ára. Einnig fullyrti hann að henni hefði verið nauðgað af hermönnum, en ekki skýrt rétt frá því í hælisumsókn sinni. Strax og fréttist bárust af því í gær að framburður þernunnar væri ekki jafn traustur og áður var talið, þá komu félagar Strauss-Kahns úr franskri pólitík honum strax til málsvarnar. Hann gæti enn tekið þátt í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningar á næsta ári, þótt hann yrði ekki sjálfur í framboði. Þá gæti hann átt möguleika á ráðherraembætti í ríkisstjórn Sósíalista. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Veður Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Sjá meira