Innlent

Vilja leiðréttingu og afnám trygginga

Hagsmunasamtök heimilanna krefjast leiðréttingu stökkbreyttra lána og afnáms verðtryggingar.
Hagsmunasamtök heimilanna krefjast leiðréttingu stökkbreyttra lána og afnáms verðtryggingar. Mynd/Vilhelm
Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að stjórnvöld hefji undirbúning að almennum leiðréttingum stökkbreyttra lána og afnámi verðtryggingar eða skjóti málinu undir dóm þjóðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin krefjast þess að stjórnarfrumvarp verði lagt fyrir Alþingi ekki síðar en á næsta haustþingi og samþykkt fyrir áramót.

Þá hafa samtökin hafið undirskriftasöfnun kröfu sinni til stuðnings, á vef sínum, www.heimilin.is. Kröfugerð undirskriftasöfnunarinnar er eftirfarandi: „Í nafni almannahagsmuna krefjumst við undirrituð almennrar og réttlátrar leiðréttingar á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar. Hafi stjórnvöld ekki orðið við þessari kröfu fyrir 1. janúar 2012 jafngildir undirskrift mín kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfugerðina."

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×