Erlent

Skulda 41 milljarð evra í skatt

Fjármálaráðuneyti Grikklands hefur nú leit að umfangsmestu skattsvikurunum.
Fjármálaráðuneyti Grikklands hefur nú leit að umfangsmestu skattsvikurunum. Mynd/AP
Fjármálaráðherra Grikklands segir að hópur lögfræðinga og endurskoðenda verði ráðinn í ráðuneytið til að elta uppi 10 þúsund alvarlegustu skattsvikin í landinu.

Talið er að um 900 þúsund Grikkir og grísk fyrirtæki skuldi landinu um 41 milljarð evra vegna skattsvika. 90 prósent af þeirri fjárhæð eru vegna 14.700 skattgreiðenda og fyrirtækja.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×