Innlent

Gagnrýna að ríki styðji Sea Shepherd

Tómas H. Heiðar
Tómas H. Heiðar
Bretar hafa legið undir ámæli frá fulltrúum ýmissa þróunarríkja á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins þar sem bresk stjórnvöld létu undir höfuð leggjast að gefa út vegabréfsáritun til fulltrúa nokkurra aðildarríkja í Vestur-Afríku. Gagnrýnt er að fulltrúarnir hafi þannig verið hindraðir í að taka þátt í fundinum, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í atkvæðagreiðslu.

Tómas H. Heiðar, formaður íslensku sendinefndarinnar, segir að Íslendingar hafi lýst fullri samúð með umræddum þróunarríkjum og lagt áherslu á að vegna þessa óheppilega máls bæri ekki að greiða atkvæði um neinar tillögur á fundinum. Málið er enn óútkljáð.

Tómas segir andrúmsloftið í ráðinu hafa batnað mjög frá fundinum í Agadir í fyrra, en þar mistókst að ná málamiðlun milli fylgjenda og andstæðinga hvalveiða. „Undir niðri kraumar hins vegar og lítið má út af bera til að úfar rísi. Á ársfundinum hafa komið upp nokkur mál sem vakið hafa sterkar tilfinningar,“ segir Tómas.

Hann vísar þar meðal annars til þess, auk málsins með áritanirnar, að Japan vakti í gær máls á því sem fulltrúi landsins kallaði ofbeldisfullar og lífshættulegar aðgerðir Sea Shepherd-samtakanna gegn japönskum hvalveiðiskipum í Suðurhöfum. Fjölmörg aðildarríki, bæði úr hópi fylgjenda og andstæðinga hvalveiða, fordæmdu aðgerðirnar.

„Ísland lagði áherslu á að ekki ætti að beina sjónum að hryðjuverkasamtökunum Sea Shepherd, heldur fremur þeim aðildarríkjum ráðsins sem styddu aðgerðir þeirra beint og óbeint. Gagnrýndi Ísland sérstaklega Holland, þar sem skip samtakanna eru skráð, og Ástralíu, sem veitir skipunum þjónustu í höfnum sínum, fyrir að fullnægja ekki alþjóðlegum skuldbindingum sínum sem fánaríki og hafnríki og styðja með aðgerðarleysi sínu hinar hættulegu aðgerðir umræddra samtaka,“ segir Tómas.

Hann segir það hafa vakið athygli hve dregið hafi úr mótmælum gegn hvalveiðum. „Þegar íslenska sendinefndin kom til ársfundarins á mánudag voru aðeins örfáir mótmælendur fyrir utan fundarstaðinn. Við finnum fyrir auknum skilningi á þeim málstað sem við höfum haldið á lofti um réttinn til sjálfbærrar nýtingar lifandi auðlinda hafsins, þar á meðal sjávarspendýra.“

kolbeinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×