Innlent

Svikahrappur kynntist fórnarlambi í árekstri

Fjöldi manns afhenti manninum háar fjárhæðir.
Fjöldi manns afhenti manninum háar fjárhæðir.
Karlmaður á sextugsaldri, sem sætt hefur rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er grunaður um að hafa haft yfir hundrað milljónir af fólki með svikum og prettum. Fórnarlömbunum kynntist hann með ýmsum hætti. Til dæmis kynntust einn brotaþolinn og svindlarinn þegar bílar þeirra rákust saman.

Maðurinn var handtekinn í apríl á síðasta ári, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Handtakan átti sér stað í kjölfar fjölda tilkynninga um vafasamt hátterni hans. Maðurinn, sem var bæði tekjulaus og gjaldþrota, var grunaður um að hafa ítrekað haft fé af fólki með blekkingum en við skoðun á bankareikningum hans aftur í tímann mátti sjá mikla fjármuni fara þar um.

Hann sat í gæsluvarðhaldi í sex vikur en fyrir handtökuna hafði ítarleg rannsókn þegar farið fram. Meðan á varðhaldinu stóð voru margir kallaðir í skýrslutökur en fórnarlömbin skiptu tugum. Fólkið afhenti honum tugi milljóna gegn loforði um góða ávöxtun, oftast tengda gjaldeyri. Einhverjir fengu eitthvað greitt til baka en endurgreiðslurnar virðast hafa verið fjármagnaðar með fjármunum frá öðrum fórnarlömbum mannsins.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá var sami maður náðaður af heilsufarsástæðum fyrir um tíu árum og þurfti því ekki að afplána tuttugu mánaða fangelsi, sem Hæstiréttur hafði þá dæmt hann í fyrir misneytingu gagnvart áttræðri, heilabilaðri konu, sem hann hafði haft háar fjárhæðir af.

Rannsókn lögreglu á svikum mannsins nú er á lokastigi og verður málið sent til ákæruvaldsins um framhaldið.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×