Tíska og hönnun

Fimm íslensk merki á tískuvikuna í París

Rebekka Jónsdóttir hannar undir merkinu REY og er á leiðinni á tískuvikuna í París í fyrsta sinn ásamt íslensku merkjunum Kalda, Eygló, Helicopter og Shadow Creatures.
Rebekka Jónsdóttir hannar undir merkinu REY og er á leiðinni á tískuvikuna í París í fyrsta sinn ásamt íslensku merkjunum Kalda, Eygló, Helicopter og Shadow Creatures. Fréttablaðið/vilhelm
„Ég fer út með bjartsýnina að vopni og vonast til að næla mér í nokkra viðskiptavini," segir Rebekka Jónsdóttir fatahönnuður en hún fer nú í fyrsta sinn á tískuvikuna í París.

Rebekka hannar undir merkinu REY og hefur farið einu sinni á tískuvikuna í New York.

„Þar fékk ég margoft að heyra að fatnaðurinn ætti frekar heima í París. Mér hefur verið sagt að kaupendur á tískuvikunni í París séu opnari fyrir nýjum merkjum og þori frekar að taka áhættu, þar sem þeir eru yfirleitt með meira á milli handanna," segir Rebekka, en leggur áherslu á hún sé með báða fætur á jörðinni í þessum efnum og veit að það tekur tíma að festa sig í sessi í alþjóðlega tískuheiminum.

Tískuvikan í París stendur frá 27. september til 5. október og er einn af stærstu tískuviðburðum í heiminum. Stærstu hönnuðir heims sýna þar sumarlínur sínar fyrir árið 2012. Auk Rey frá Rebekku eru það Kalda, Helicopter, Shadow Creatures og Eygló en flestar eru þær að freista gæfunnar í höfuðborg tískunnar í fyrsta sinn.

Það er í mörg horn að líta áður farið er á tískuviku og auk þess er Rebekka að taka á móti vetrarlínu sinni og koma henni upp í versluninni Kiosk.

Þegar Fréttablaðið náði tali af Rebekku var hún stressuð þar sem einn framleiðenda hennar í Ítalíu var með eitthvert vesen.

„Þetta er eins og sinfónía. Ef einn strengur slitnar fer allt að hljóma illa. En maður lærir af þessu og í þetta sinn ætla ég að vera með öll smáatriði á hreinu. Til dæmis ekki gleyma pöntunareyðublöðum eins og ég gerði í New York," segir Rebekka hlæjandi áður en hún heldur áfram að hnýta saman alla lausa enda fyrir ferðina. -áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.