Erlent

Fullyrða að um 50 manns hafi farist í gær

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einni Tomahawk flauginni skotið á loft í gær. Mynd/ afp.
Einni Tomahawk flauginni skotið á loft í gær. Mynd/ afp.
Stjórnvöld í Líbíu fullyrða að hið minnsta 50 manns, þar á meðal konur og börn, hafi farist í árásum bandamanna á Líbíu í gærkvöld. Bandamenn segjast ekki geta staðfest þær upplýsingar, eftir því sem fram kemur á fréttavef CNN.

Bandamenn skutu um 112 Tomahawk flaugum á hernaðarlega mikilvæg skotmörk í Líbýu í gærkvöld til að framfylgja ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þjóðaröryggisfulltrúi Bandaríkjanna sagði seint í gær að loftvarnarkerfi Líbíu væri verulega laskað.

David Cameron, forsætisráðherra Breta, sagði í gær að aðgerðir bandamanna væru nauðsynlegar, löglegar og réttar. Hann og Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sögðu báðir að það væri ekki hægt að sitja hjá og horfa upp á Gaddafi, leiðtoga Líbíu, misþyrma þjóð sinni.

Líbísk stjórnvöld vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman til að fara yfir stöðuna. Þau segja að ályktun öryggisráðsins frá því á fimmtudag sé ekki lengur í gildi eftir árásirnar í gær. Þá hefur Gaddafi hótað því að árásinni verði svarað með árásum á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og óbreytta borgara í ríkjum við Miðjarðarhafið. Líbísk stjórnvöld hafa einnig tilkynnt að þau séu með fjóra blaðamenn á vegum Al-Jazeera fréttastofunnar í haldi. Einn þeirra er breskur og annar frá Noregi.




Tengdar fréttir

Meðvitaður um hættur hernaðaraðgerðanna

"Ég er meðvitaður um hættur hernaðaraðgerða,” sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í sjónvarpsávarpi í kvöld. Ég vil að ameríska þjóðin viti að beiting valds er ekki fyrsti kostur í stöðunni,“ sagði Barack Obama þegar að hann réttlætti loftárásirnar á Líbíu sem hófust í kvöld. Obama sagði að Gaddafi beitti þjóð sína svo mikillli grimmd að ekki væri hægt að standa hjá og horfa á ofbeldið.

Ræða flugbann yfir Líbíu í dag

Málefni Líbíu og mögulegt flugbann yfir landinu er aðalumræðuefni utanríkisráðherra G8 ríkjanna, sem funda nú í París. Bretar og Frakkar hafa hvatt til þess að bannið verði sett á sem fyrst og Arababandalagið hefur lýst yfir stuðningi við það. Uppreisnarmenn hafa kallað eftir stuðningi alþjóðasamfélagsins.

Tólf milljónir í neyðaraðstoð til Líbíu

Íslensk stjórnvöld munu veita 12 milljónum króna til alþjóðlegrar neyðaraðstoðar í Líbíu samkvæmt ákvörðun Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. „Neyðarástand ríkir í landinu og tugir þúsunda flóttamanna hafa farið yfir landamærin frá Líbíu til Egyptalands og Túnis,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Flugher Líbíu gerir árásir á Benghazi

Loftárásir eru hafnar á næst stærstu borg Líbíu, Benghazi, sem er helsta vígi uppreisnarmanna í landinu sem berjast nú við liðsmenn einræðisherrans Gaddafís. Fréttamenn breska ríkisútvarpsins á staðnum hafa greint frá flugvélagný og sprengingum í úthverfum borgarinnar en í henni búa milljón manns.

Gaddafi: Svikurum engin miskunn sýnd

Mikill fögnuður braust út í Bengazi, höfuðvígi uppreisnarmanna í Líbíu í gærkvöldi, þegar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti flugbann yfir landinu. Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn munu framfylgja flugbanninu en umfangsmiklar hernaðaraðgerðir hefjast um helgina.

Frakkar senda flugmóðurskip sitt til Líbíu

Franskar herþotur skutu fyrstu skotum á líbísk skotmörk í dag. Þá hefur David Cameron, forsætisráðherra Breta, staðfest að breskar herþotur væru tilbúnar til árásar og bandarískir fjölmiðlar segja að hermenn Bandaríkjamanna hafi skotið stýriflaug.

Bandamenn búa sig undir árásir á Gaddafi

Um 20 herþotur frá franska flughernum sveima nú í líbískri lofthelgi til að koma í veg fyrir að herlið Gaddafis Líbíuforseta geti ráðist á uppreisnarmenn í borginni Benghazi. Þá eru einnig franskar þotur yfir Líbíu.

Flugbann yfir Líbíu samþykkt

Flugbann yfir Líbíu var samþykkt nú fyrir stundu hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Það var samþykkt með tíu atkvæðum. Enginn greiddi atkvæði gegn því en fimm sátu hjá.

Vopnahléi lýst yfir í Líbíu

Stjórnvöld í Líbíu hafa lýst yfir vopnahléi sem tekur gildi nú þegar. Öryggisráð sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi flugbann yfir landinu auk þess sem hernaðaraðgerðir til varnar óbreyttum borgurum eru heimilaðar. Utanríkisráðherra Líbíu hefur nú tilkynnt um skilyrðislaust vopnahlé sem ætlað er að vernda almenning.

Muammar Gaddafi: Ef heimurinn verður brjálaður, þá verðum við brjálaðir

Muammar Gaddafi hótaði þeim, sem skipta sér af átökum í landinu, öllu illu í hljóðávarpi sem var birt á ríkissjónvarpsstöðinni í Líbíu í kvöld. Orðum sínum beindi hann til þeirra sem hyggjast koma á flugbanni yfir Líbíu en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna funda um málið og má búast við niðurstöðu eftir klukkan tíu í kvöld.

Herþota skotin niður

Herþota var skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt þrátt fyrir að ríkisstjórn Líbíu hafi lýst yfir vopnahléi.

Fyrstu loftárásirnar á Líbíu hugsanlega í nótt

Hugsanlega hefjast fyrstu loftárásirnar gegn Líbíu strax í nótt samkvæmt fréttavef BBC en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykktu á ellefta tímanum flugbann og víðtækar aðgerðir gegn Líbíu til þess að vernda borgara landsins.

Gaddafi með fjóra blaðamenn í haldi

Líbísk stjórnvöld hafa tekið fjóra blaðamenn í gíslingu eftir að árásir bandamanna á Líbíu hófust í dag. Blaðamennirnir starfa allir fyrir Al-Jazeera fréttastofuna. Þeir eru frá Bretlandi, Noregi, Túnis og Márítaníu, að því er Al-Jazeera greinir frá. Blaðamennirnir hafa verið í Líbíu undanfarna daga til þess að greina frá ástandinu þar.

Varnarkerfið verulega laskað eftir loftárásir

Loftvarnarkerfi Líbíu er verulega laskað, segir þjóðaröryggisfulltrúi Bandaríkjanna. Eins og fram hefur komið fyrr í kvöld hafa bandamenn skotið 112 Tomahawk flaugum á hernaðarlega mikilvæg skotmörk í Líbíu.

Bandamenn ætla að ráðast á Gaddafi

Loftárásir bandamanna á Líbíu geta hafist á hverri stundu en leiðtogar Evrópu, nokkurra Arabaríkja og utanríkisráðherra Bandaríkjanna ákváðu á fundi í París rétt í þessu að hefja hernaðaraðgerðir.

Gríðarlegur fögnuður í Benghazi

Mikill fjöldi er samankominn og fagnar í Benghazi vegna ákvörðunar Sameinuðu þjóðanna þar sem flugbann var samþykkt fyrir stundu. Flugbannið þýðir að Muammar Gaddafi getur ekki beitt herþotum sínum gegn uppreisnarmönnum í Líbíu.

Loftárásir hafnar á Líbíu

Hundruðum flugskeyta hefur í kvöld verið skotið á valin skotmörk í Líbíu af herliði Bandaríkjamanna, Breta og Frakka. Aðgerðirnar eru með það að markmiði að framfylgja flugbanni yfir landinu sem samþykkt var í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna en fyrr í dag bárust af því fregnir að herlið einræðisherrans Gaddafís hefði gert árás á vígi uppreisnarmanna í borginni Benghazi, þrátt fyrir að hafa lýst yfir vopnahléi í gær.

Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu

David Cameron, forsætisráðherra Breta, Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, eru í þann mund að hittast til að ræða stöðuna í Líbíu. Síðar í dag munu þau svo hitta leiðtoga fleiri Evrópuríkja og Arabaríkja til að ræða hernaðaraðgerðir. Þær eru hrikalegar myndirnar sem sýna þegar herþota er skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt. Vélin var á vegum uppreisnarmanna og talið er að það hafi verið hersveitir Gaddafis sem skutu vélina niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×