Innlent

Dæmdur fyrir að tæla stúlku til kynferðismaka

Hæstiréttur.
Hæstiréttur.

Hæstiréttur Íslands staðfesti árs fangelsi yfir 33 ára gömlu manni í dag sem var dæmdur fyrir að hafa tælt 17 ára gamla stúlku til samræðis og nýtt sér yfirburði sína gagnvart henni sökum aldurs- og þroskamunar.

Atvikið átti sér stað haustið 2009. Maðurinn greiddi fyrir hana flugfar og gaf henni að auki áfengi og amfetamín vitandi um aldur hennar og bágar aðstæður. Hann hafði svo samfarir við stúlkuna í sumarbústað á Suðurlandi.

Hæstiréttur taldi fullsannað að maðurinn væri sekur um tælingu og staðfesti því dóm Héraðsdóms Suðurlands. Þá er manninum gert að greiða stúlkunni átta hundruð þúsund krónur í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×