Menning

Með ofnæmi fyrir myndefninu

Brynhildur Bolladóttir myndaði ketti sem urðu á vegi hennar í sumar.
Brynhildur Bolladóttir myndaði ketti sem urðu á vegi hennar í sumar. Fréttablaðið/Vilhelm
Brynhildur Bolladóttir, laganemi og listamaður, opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu í Kaffistofu nemendagalleríi í kvöld. Sýningin stendur aðeins yfir þetta eina kvöld.

Brynhildur hefur starfað sem bréfberi síðustu sumur og í gegnum starfið kynntist hún fjölda katta sem búsettir eru í Norðurmýrinni.

Í upphafi fylgdust kettirnir með störfum Brynhildar úr fjarlægð en að lokum náði forvitnin yfirhöndinni og fóru þeir að fylgja henni eftir um hverfið. Í sumar ákvað Brynhildur að mynda kettina sem hún segir alla mjög ólíka. „Hverfið var fullt af köttum. Við eitt hús sátu alltaf þrír kettir saman á vegg og ég hélt mikið upp á þá.“

Brynhildur viðurkennir að það hafi verið erfitt að ná góðum myndum af köttunum og stundum hafi hún þurft að hlaupa á eftir myndefninu. Innt eftir því hvort hún sé mikil kattakona sjálf svarar Brynhildur neitandi. „Ég er með ofnæmi fyrir þeim. Mér finnst þeir afskaplega sætir en get lítið knúsað þá.“ Sýningin opnar klukkan 19 við Hverfisgötu 42.

-sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×