Innlent

Umferð gengið vel þrátt fyrir mikinn snjó

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það hefur snjóað býsna mikið í Reykjavík í dag og færðin verið léleg.
Það hefur snjóað býsna mikið í Reykjavík í dag og færðin verið léleg.
Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður og færðin í Reykjavík verið afar slæm í dag hafa fá óhöpp orðið í umferðinni, samkvæmt upplýsingum Vísis.

„Það er nú bara mesta furða. Það hafa ekki orðið margir árekstrar í dag. Umferðin hefur náttúrlega gengið mun hægar en í venjulegu árferði, en fólk virðist hafa farið varlega," segir lögreglumaður hjá umferðardeild lögreglunnar sem Vísir talaði við.

Einn bíll lenti þó á staur á Álftanesvegi nú undir kvöld, en ekki hlaust alvarlegt slys af því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×