Innlent

Tvær bílveltur nærri Hvolsvelli

Hvolsvöllur.
Hvolsvöllur.

Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni til lögreglunnar á Hvolsvelli. Tildrög þeirra má rekja til snjós og hálku á vegum en mikið hefur snjóað. Eins leituðu ökumenn aðstoðar lögreglu og björgunarsveita sem lent höfðu í vandræðum eftir að hafa misst bifreiðar sínar útaf.

Auk útafakstra þá valt bifreið á fimmtudag á Suðurlandsvegi í Mýrdal, bifreið valt einnig á Sprengisandsleið á sunnudag. Ekki urðu slys í þessum óhöppum en ökutækin eru mikið skemmd.

Um helgina voru haldin fjögur þorrablót í umdæmi okkar, skemmst er frá að segja að þau fóru öll vel fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×