Erlent

Kanar fá eiginkonur Osamas

Óli Tynes skrifar
Osama bin Laden
Osama bin Laden
Líklegt er talið að Bandaríkjamenn fái að yfirheyra eiginkonur Osama bin Ladens, að sögn bresku Sky fréttastofunnar. Opinberlega segja Pakistanar að engin ákvörðun hafi verið tekin ennþá. Þeir eru enda opinberlega ennþá í reiðikasti yfir því að Bandaríkjamenn skyldu ráðast innfyrir landamæri þeirra.

 

Háttsettur bandarískur embættismaður sagði hinsvegar við Sky að  svarið yrði mjög líklega jákvætt. Þrjár eiginkonur hryðjuverkaleiðtogans voru í vígi hans í Pakistan þegar hann var ráðinn af dögum. Bandaríkjamenn vilja spyrja þær bæði um ferðir hans og um Al Kaida samtökin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×