Vilja stytta leiðina norður 14. febrúar 2011 21:45 Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Mynd/Stefán Karlsson
Sjö þingmenn þriggja stjórnmálaflokka vilja að hafinn verði undirbúningur að gerð nýs vegar sem myndi stytta vegleiðina milli höfuðborgarsvæðisins og Norðausturlands um allt að 14 kílómetra. Fjármögnun framkvæmda á að fara fram með töku veggjalda, en vegurinn myndi liggja um svonefnda Svínavatnsleið sem einnig hefur stundum verið kölluð Húnavallaleið. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar sem lögð var fram á Alþingi í dag. Meðflutningsmenn eru: Tryggvi Þór Herbertsson, Róbert Marshall, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Árni Johnsen og Þór Saari. Þingmennirnir telja að veglagningin sé „ein arðsamasta samgönguframkvæmd sem mögulegt er að ráðast í." Í greinargerð segir að áætla megi að leiðin muni liggja af núverandi þjóðvegi 1 í landi Brekkukots, norðan Svínavatns og tengjast hringveginum aftur við Fagranes í Langadal. Leiðin er tæplega 17 km löng og styttir hringveginn um allt að 14 km, að því er segir í greinargarðinni.Augljós hlykkur „Áætla verður að leiðin verði að liggja yfir nokkurt votlendi í landi Orrastaða og yfir a.m.k. þrjár ár á leiðinni, Stóru-Giljá, Fremri-Laxá og Blöndu. Blöndu þarf að brúa með nokkuð stórri brú, um 156 metra langri yfir fimm brúarhöf. Brúa þarf Fremri-Laxá með 20-30 metra langri brú sem yrði að svipaðri lengd og sú sem er þar fyrir. Í stað brúar yfir Stóru-Giljá má hugsanlega setja vegræsi, sömu stærðar og nú ber ána undir hringveginn. Áætla má að þessi nýja þjóðleið mundi að einhverju leyti leysa af hólmi þá totu hringvegarins sem liggur í gegnum Blönduósbæ og er, eins og sjá má á landakortum, augljós hlykkur á þjóðleiðinni um Norðurland."Mest notaða vöruflutningaleið landsins Þingmennirir segja að ekki verði fram hjá því litið að stytting hringvegarins á þessum slóðum um allt að 14 kílómetra hefði umtalsverða þýðingu fyrir atvinnu og samfélag á Norðausturlandi og fyrir þá nokkur hundruð einstaklinga sem dag hvern fara þarna um á leið sinni milli landshluta. „Leiðin gagnast jafnvel Siglfirðingum þar sem leiðin til Siglufjarðar er lengri sé farið um Þverárfjall heldur en um þennan nýja hringvegarkafla. Í þessu efni er einnig rétt að nefna að þjóðleiðin milli Reykjavíkur og Akureyrar er mest notaða vöruflutningaleið landsins. Stytting hennar úr 389 km niður í allt að 375 km, eða sem svarar 3,5% af leiðinni, getur hæglega sparað um hálfa milljón króna á ári fyrir þá flutningabíla sem oftast aka þessa leið." Hægt er að lesa tillöguna í heild sinni hér.
Mest lesið Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira