Innlent

Aðstoðuðu fólk á Fjarðarheiði

Björgunarsveitarmenn frá Seyðisfirði og Egilsstöðum komu fjölmörgum vegfarendum um Fjarðarheiði til hjálpar í gær og fram á kvöld, þar sem þeir sátu fastir í bílum sínum í óveðri.

Óvenju mikil umferð var um heiðina þar sem Norræna kom til Seyðisfjarðar í gær. Hægt var að hjálpa sumum ökumönnum á bílum þeirra niður af heiðinni, en nokkrir bílar voru skildir eftir og verða væntanlega sóttir í dag.

Engin lenti í líkamlegum hrakningum í óveðrinu. Þar var enn slæmt veður snemma í morgun, en spáð er skánandi veðri með morgninum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×