Körfubolti

Helgi Már hafði betur gegn Loga eftir framlengingu

Helgi Már.
Helgi Már.
Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR höfðu betur gegn liði Loga Gunnarssonar, Solna Vikings, í framlengdum háspennuleik í kvöld. Lokatölur 114-107.

Helgi Már átti stórleik og skoraði 24 stig og tók 8 fráköst fyrir Stockholm. Logi einnig öflugur með 20 stig fyrir Solna.

Brynjar Þór Björnsson skoraði 5 stig og gaf 2 stoðsendingar er Jämtland tapaði, 85-97 á heimavelli gegn Boras Basket.

Stockholm komst upp úr fallsæti með sínum sigri en þeirra sæti tók Jämtland. Solna er í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×