Körfubolti

Helena með 19 stig og 9 stoðsendingar í stórsigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir átti flottan leik með Good Angels Kosice í slóvakísku deildinni um helgina en hún skoraði 19 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 7 fráköst á 27 mínútum í 107-36 sigri liðsins á Moris Cassovia Kosice.

Helena var bæði stigahæst og stoðsendingahæst í sínu liði. Helena hitti úr 8 af 14 skotum sínum í leiknum og var einnig með 3 stolna bolta.

Helena hefur þar með skorað 48 stig í síðustu tveimur deildarleikjum Good Angels Kosice og er búinn að skora 13 stig eða meira í síðustu fjórum leikjum. Good Angels Kosice hefur unnið alla tíu deildarleiki sína á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×