Hvetur til samninga við Alcoa um álver við Húsavík 8. febrúar 2011 12:03 Bergur Elías Ágústsson.
Bæjarstjóri Norðurþings hvetur til þess að gengið verði til samninga við Alcoa um álver á Bakka. Búið sé að undirbúa það verkefni árum saman og tími til kominn að hefja atvinnuuppbyggingu.Tveir af æðstu ráðamönnum Alcoa funduðu fyrir helgi með iðnaðarráðherra og Landsvirkjun og lýstu því þar yfir að fyrirtækið hefði enn fullan hug á að reisa álver við Húsavík. Landsvirkjun segist vera í viðræðum við fjóra til fimm ólíka aðila um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum.Á Húsavík segir bæjarstjóri Norðurþings, Bergur Elías Ágústsson, þennan áhuga Alcoa ekki koma á óvart. Spurður hvort álver sé óskastaðan svarar Bergur að búið sé að vinna að því verkefni alllengi. Margir aðrir kostir hafi einnig verið skoðaðir."Þetta er sá kostur sem við höfum komist lengst með og teljum mjög fýsilegan fyrir okkar svæði," segir Bergur Elías. Verkefnið sé nægilega stórt til að geta byggt upp innviði samfélagsins, eins og rafdreifikerfi og hafnaraðstöðu. "Við erum með Alcoa í huga enda höfum við starfað með þeim síðan 2006," segir bæjarstjórinn.En óttast bæjarstjórinn að ríkisstjórnin muni hindra saminga við Alcoa?"Ég held ekki," segir Bergur Elías og ítrekar að búið sé að vinna að þessu verkefni í mörg ár. "Og nú er komin sú staða að menn fari að leiða það til lykta. Ef það er eitthvað sem Ísland þarf þá er það atvinnuuppbygging. Hér gefst tækifæri til þess," svarar bæjarstjórinn.
Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Erlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Fleiri fréttir Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Sjá meira