Erlent

Heathrow-flugvöllur rýmdur

Frá flugvellinum.
Frá flugvellinum. Mynd/AFP
Flugstöðvarbyggingu fimm var lokað á Heathrowflugvelli í dag eftir að grunsamlegur hlutur fannst í byggingunni. Byggingin var rýmd á meðan hluturinn var rannsakaður og voru farþegar spurðir spurninga af lögreglu.

Talsmaður lögreglunnar segir að eftir rannsókn hafi komið í ljós að ekkert grunsamlegt hafi fundist við hlutinn og enginn hafi verið handtekinn.

Fréttastofan Sky News sagði fyrr í dag að byggingin hafi verið rýmd vegna þess að maður hótaði að sprengja sjálfan sig í loft upp. Þær fréttir reyndust ekki vera réttar.

Gert er ráð fyrir því að byggingin verði opnuð aftur á næstu mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×