Innlent

Tveir innbrotsþjófar gripnir í nótt

Lögregla handtók tvo innbrotsþjófa , rétt eftir að þeir höfðu brotist inn í fyrirtæki við Síðumúla í Reykjavík í nótt.

Þeir voru gripnir rétt áður en þeir komust í bíl, sem þeir höfðu komið á. Verið er að rannsaka málið nánar.

Þá var brotist inn í íþróttahús Kennaraháskólans en ekki liggur fyrir hvort einhverju var stolið þar og er þjófurinn ófundinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×