Innlent

Þuklaði á konu innan klæða

Karl á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og til greiðslu 300 þúsund króna miskabóta.

Lögregla var kölluð í hús í Reykjavík að morgni 19. júní í fyrra. Þar bar kona að maður hefði þuklað á sér innanklæða. Dómurinn taldi að viðbrögð konunnar væru til marks um að henni hefði verið gróflega misboðið við káf mannsins. Henni voru dæmdar 300 þúsund í miskabætur. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×