Innlent

Mögulega kveikt í á Eiðsvallagötu

MYND/Daníel Guðmundsson

Lögreglan á Akureyri leitar að vitnum að eldsvoðanum að Eiðsvallagötu 5 á Akureyri að morgni annars janúar. Ekki er talið útilokað að um íkveikju hai verið að ræða að sögn Lögreglu.

Hún óskar eftir því að ná tali af ungum manni er var á vettvangi þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn laust fyrir klukkan hálfátta. Sá aðili var dökkhærður og grannur, klæddur í gallabuxur og svarta peysu með rauðum merkingum.

Einnig óskar lögreglan eftir því að ef einhver varð var við mannaferðir í og við Eiðsvallagötu 5 þarna um morguninn þá hafi sá hinn sami samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7705.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×