Erlent

Adam Sandler fær stjörnu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Adam Sandler fær stjörnu á Hollywood Walk of Fame.
Adam Sandler fær stjörnu á Hollywood Walk of Fame.
Hollywoodleikarinn Adam Sandler mun fá sína eigin stjörnu á svokallaðri Hollywood Walk of Fame á þriðjudaginn. Tíu dögum síðar verður nýjasta kvikmynd hans Just Go With It frumsýnd.

Sandler hefur verið einn vinsælasti grínleikarinn í Hollywood um árabil. Kvikmyndir hans hafa halað inn þremur milljörðum bandaríkjadala, eða um 350 milljörðum íslenskra króna. Nýjasta myndin, Grown Ups, hefur skilað mestum tekjum allra þeirra eða 271 milljón bandaríkjadala, eða 32 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×