Réttarhöldum yfir níumenningunum lokið SB skrifar 20. janúar 2011 16:31 Lögmenn níumenningana stilla sér upp á mynd í lok réttarhaldanna.
Ákæra ríkissaksóknara á hendur níumenningunum var harðlega gagnrýnd af verjendum níumenningana í dag. Verjendurnir fjórir fóru allir fram á sýknu skjólstæðinga sinna. Verjendurnir hafa bent á að ákæruvaldið hafi ekki getað sýnt fram á ásetning níumenningana um að ætla að ráðast gegn friðhelgi Alþingis eða um önnur brot sem þeir eru sakaðir um. Þeir hafa jafnframt gagnrýnt ákæruna harðlega. "Það má ekki umgangast 100. greinina af léttúð og ekki má gefa út ákæru nema meiri líkur en minni séu á sakfellingu," sagði Bjarni Einarsson, lögmaður Teits Ársælssonar. "Í tilviki skjólstæðings minns er honum gert að sök að ganga inn í Alþingishúsið, upp 17 tröppur og lenda svo í kös. Þó hann hafi ekki afhent yfirhöfn eða töskur er það ekki árás á Alþingi og fáránlegt að halda slíku fram." Málflutningur Bjarna var líkt og annarra verjenda afar gagnrýninn í garð Láru V. Júlíusdóttur. Lára fór í morgun fram á hörðustu refsingu yfir níumenningunum og sagði þau ekki eiga sér neinar málsbætur. Upplausnarástand Bjarni benti einnig á að enginn viti í raun hvaða fyrirmæli lögreglan hafi gefið. Ástandið hafi, líkt og aðrir verjendur bentu einnig á, einfaldlega farið úr böndunum. "Það man til dæmis enginn lögregluþjónn eftir því að hafa handtekið skjólstæðing minn. Það eitt að vera í húsi er ekki húsbrot - ef svo er þá hefði átt að handtaka alla en ekki velja handahófskennt úr hópnum og ákæra níu." Brynjar Níelsson, verjandi Andra Lemarqui og Jóns Benedikts, sagði ákæruna óskiljanlega. Ekkert sé upplýst í þessu máli. "Það hefur ekki verið upplýst að hinir ákærðu hafi farið inn í Alþingishúið í því skyni að svipta Alþingi sjálfræði eða í aðgerðir þar sem Alþingi var hætta búin," sagði Brynjar og spurði svo: "Í hverju af því sem þarna var gert var Alþingi hætta búin?" Beit í sjálfsvörn Andri Lemarqui er ákærður fyrir að hafa bitið tvo lögreglumenn og hrint þingverði með þeim afleiðingum að hún féll á ofn. Brynjar benti á að í myndbandinu, sem sýnt hefur verið við réttarhöldin, sjáist að einn þingvörður ráðist aftan að Andra og þeir falli í fangabrögðum að þingverðinum Maríu sem fellur á ofninn. Sagði Brynjar engan ásetning hafa verið af hálfu skjólstæðing síns og því um gáleysi að ræða. Varðandi bitið sagði Brynjar það hafa gerst í sjálfsvörn: "Honum er haldið af fjórum til fimm mönnum, hann er kvalinn, hendur fastar, fætur fastir, hvað á hann að gera? Þú berst á móti og það var ekkert eftir nema munnurinn sem hann gat hreyft." Brynjar tók undir orð Ragnars Aðalsteinssonar sem sagði ríkisvaldið verða að þola hóflega truflun af mótmælum, beita verði svokölluðu meðalhófi og aðstæður skoðaðar hverju sinni. Byltingarástand Tekist var á um grundvallaratriði málsins í málflutningnum í dag. Verjendur lögðu mikla áherslu á það byltingarástand sem ríkti í samfélaginu á þeim tíma sem hin meintu brot hafi verið framin. Í raun hefðu mun alvarlegri hlutir átt sér stað en hin meinta árás níumenningana; rúður í Alþingishúsinu verið brotnar og eldar kveiktir. Engin rannsókn hefði hins farið fram á þeim brotum. Lára V. Júlíusdóttir, settur ríkissaksóknari, nýtti sér ekki rétt sinn til svara og enginn sakborninga óskaði eftir því að fá að ávarpa dóminn. Við lok málflutningsins lýsti dómari því yfir að hann tæki sér fjórar vikur til þess að kveða upp dóminn yfir níumenningunum.
Mest lesið Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira