Innlent

Játaði alvarlega líkamsárás á höfuðborgarsvæðinu

Karlmaður, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi vegna rannsóknar á alvarlegri líkamsárás að morgni nýjársdags, játaði við yfirheyrslur í gærkvöldi aðild að árásinni.

Hann er enn í haldi lögreglu og ræðst í dag hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum.

Sá sem fyrir árásinni varð, er enn á sjúkrahúsi, en hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild.

Manninum, sem réðst á annan mann á Laugaveginum í fyrrinótt og veitti honum lífshættulega áverka, var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Fórnarlamb hans liggur enn á gjörgæsludeild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×