Innlent

Ók á dæluhús Orkuveitu Reykjavíkur

Rúmlega tvítug kona var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrri fjölmörg afbrot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að svíkja út vörur með stolnum kortum auk þess sem hún var dæmd fyrir fíkniefnamisferli. Konan ók einnig margsinnis undir áhrifum fíkniefna.

Í eitt skiptið var hún svo lyfjuð að hún missti stjórn á bifreið sinni og ók út af akbraut og á dæluhús Orkuveitur Reykjavíkur við Stekkjarbakka. Alls var konan dæmd fyrir tólf ákæruatriði. Hún játaði brotin skýlaust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×