Innlent

Frábært færi í Bláfjöllum

Opið er á skíðasvæðunum í Bláfjöllum og í Hlíðarfjalli á Akureyri í dag. Í Hlíðarfjalli verður opið frá klukkan 13 - 19. Vindhraðinn í fjallinu er tveir metrar á sekúndu og frostið um tíu gráður.

Í Bláfjöllum er einnig opið, frá klukkan 14 - 21. Flestar lyftur eru opnar og veðrið er með besta móti, átta stiga frost og stafalogn. Færið er eins og best verður á kosið, 20 sentimetra jafnfallinn snjór yfir öllu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×