Erlent

Sjóræningjar umkringdir

Óli Tynes skrifar
Sjóræningjarnir sem halda sjö dönum í gíslingu í Sómalíu hafa verið umkringdir þannig að þeir geta ekki flutt Danina frá smábænum Hul Anod þar sem þeir eru í haldi. Það eru sómalskir hermenn sem hafa umkringt stjóræningjana, en vestrænt herskip er sagt liggja aðeins tvo kílómetra frá landi.

Foringi sómölsku hermannanna hefur þó varað við því að reynt verði í bráð að frelsa gíslana með vopnavaldi. Það gætti leitt til þess að sjóræningjarnir gripu til óyndisúrræða. Meðal gíslanna eru þrjú börn á aldrinum 13 til 17 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×