Körfubolti

Helgi Már hetja 08 Stockholm

Helgi Már í leik með KR.
Helgi Már í leik með KR.
Helgi Már Magnússon var hetja 08 Stockhom HR í dag þegar hann skoraði sigurkörfuna gegn Örebro. Karfan kom fjórum sekúndum fyrir leikslok og tryggði Stockholm tveggja stiga sigur, 66-68.

Helgi Már skoraði tíu stig í leiknum, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Stockholm þurfti svo sannarlega á stigunum að halda enda var liðið í fallsæti fyrir leikinn. Liðið komst upp úr því fallsæti með þessum sigri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×