Innlent

Verkfall samþykkt í Eyjum

MYND/Hari

Mikill meirihluti starfsmanna í báðum fiskimjölsverksmiðjunum í Vestmannaeyjum samþykktu tillögu um verkfallsboðun, í atkvæðagreiðslu í gær.

Atkvæði starfsmanna í sex bræðslum á Austurlandi og í bræðslunni á Akranesi verða talin fyrir hádegi. Verði niðurstaðan sú sama og í Eyjum, hefst ótímabundið verkfall eftir viku, ef ekki semst fyrir þann tíma.

Þar með myndu loðnuveiðar stöðvast, en vertíðin stendur nú sem hæst, og hrognataka er framundan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×