Claudio Ranieri: Chelsea getur unnið Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2011 11:30 Frank Lampard og Didier Drogba. Mynd/AP
Claudio Ranieri, fyrrum þjálfari Roma og Chelsea, hefur trú á því að hans gömlu lærisveinar í Chelsea eigi góða möguleika á því að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn í maí. Úrslitaleikurinn fer einmitt fram á Wembley-leikvanginum í Lundúnum en Lundúnalið hefur aldrei unnið Evrópukeppni meistaraliða. Chelsea vann 2-0 sigur í fyrri leiknum á móti danska liðinu FC Kaupamannahöfn í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og er því komið með annan fótinn í átta liða úrslitin. „Það kemur mér ekki mikið á óvart að Chelsea hafi verið í vandræðum í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti er engin vísindi og sama lið getur bæði spilað vel og spilað illa," sagði Claudio Ranieri. „Ég held að Chelsea geti unnið Meistaradeildina því félagið er með prýðilegan hóp og frábæra leikmenn," sagði Ranieri. Hann telur að Fernando Torres og Didier Drogba eigi aðeins í land að ná sínu besta leikformi. „Kannski er Torres ekki hundrað prósent og það sama má segja um Drogba. Ég tel að þeir geti báðir spilað betur á lokakafla tímabilsins," sagði hinn 59 ára gamli Ranieri sem var rekinn frá Roma á dögunum en hann var stjóri Chelsea frá 2000 til 2004.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Handbolti Dagskráin: Úrslitakeppni NFL af stað og þrír leikir í enska bikarnum Sport Fleiri fréttir Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Sjá meira