Fótbolti

Dortmund bauð stuðningsmenn Arsenal velkomna með þessu myndbandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þýsku meistararnir í Dortmund eru greinilega orðnir sérstaklega spenntir fyrir tímabilinu í Meistaradeild Evrópu en liðið mætir Arsenal í fyrstu umferð riðlakeppninnar í kvöld.

Félagið útbjó sérstakt myndband þar sem stuðningsmenn Arsenal eru sérstaklega boðnir velkomnir á Signal Iduna-völlinn á ný en níu ár eru síðan liðin mættust síðast í Meistaradeildinni.

Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×