Fótbolti

Ferinand verður ekki með gegn Benfica

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rio Ferdinand í leiknum gegn Bolton um helgina.
Rio Ferdinand í leiknum gegn Bolton um helgina. Mynd. / Getty Images
Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United, fór ekki til Portúgals með félaginu í morgun, en liði mætir Befica í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Ferdinand á við smávægileg meiðsli að stríða og mun því ekki taka þátt í leiknum. Nemanja Vidic er sem fyrr meiddur og því mun vanta helstu reynslubolta liðsins í hjarta varnarinnar.

Það hefur hingað til ekki komið að sök þar sem ungu leikmenn Manchester United hafa hreinlega farið á kostum á tímabilinu.

Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld og heldur síðan áfram annað kvöld, en fjölmargir leikir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×