Innlent

Mikið líf á leigumarkaði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er líf á leigumarkaði þessa mánuðina.
Það er líf á leigumarkaði þessa mánuðina. Mynd/ HAG
Þinglýstum leigusamningum fjölgaði um 5,1% frá sama mánuði í fyrra, en um 65% á milli mánaða, samkvæmt tölum Fasteignaskrár. Fjöldi þinglýstra samninga í ágúst síðastliðnum á landinu öllu var 1302. Í ágúst í fyrra voru þeir 1239 en í júlí síðastliðnum voru þeir 790.

Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði þinglýstum leigusamningum í ágúst um rúm 2% sé miðað við sama mánuð í fyrra. Þeim fjölgaði hins vegar um tæp 34% á milli mánaða. Fjöldi þinglýstra samninga á höfuðborgarsvæðinu í síðasta mánuði var 746. Í ágúst í fyrra voru þeir 762 en í júlímánuði síðastliðnum voru þeir 559.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×