Innlent

Var með barnaklám í tölvunni

Ákæra vegna barnaníðsmynda hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Hinn ákærði, karlmaður um fimmtugt, játaði sök og var málið tekið til dóms.

Það var ríkissaksóknari sem ákærði manninn. Hann var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft í vörslu sinni á Hewlett Packard-tölvu 174 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×