Erlent

Talinn hafa ætlað að fremja hryðjuverk í Bandaríkjunum

Sádí arabískur ríkisborgari búsettur í Texas hefur verið handtekinn grunaður um að leggja á ráðin um hryðjuverkaárás. Maðurinn sem er tvítugur, var handtekinn á miðvikudaginn en hann er sagður hafa keypt efni og tæki til sprengjugerðar.

Þá er hann sagður hafa sett saman lista yfir möguleg skotmörk og á honum voru vatnsaflsvirkjanir og kjarnorkuver meðal annars. Þá mun hann einnig hafa haft heimilisfang George W. Bush fyrrverandi Bandaríkjaforseta í fórum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×