Erlent

Hugh Hefner tilkynnir þriðja hjónaband sitt

Gamli Playboy kóngurinn Hugh Hefner hefur tilkynnt um þriðja brúðkaup sitt og verður það haldið í júní.

Hefner er orðinn 84 ára gamall en komandi brúður hans, Crystal Harris, er 60 árum yngri. Brúðkaupið verður haldið í hinni þekktu Playboy-höll í Los Angeles.

Í fyrsta hjónabandi sínu fyrir hálfri öld síðan eignaðist Hefner tvö börn. Það varð einnig raunin í öðru hjónabandinu en þau börn, Marston og Cooper, eru að komast á svipaðan aldur og hin verðandi eiginkona Hefners.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×