Erlent

Discovery lenti heilu og höldnu

Discovery við lendinguna í dag
Discovery við lendinguna í dag Mynd/AFP
Bandaríska geimferjan Discovery lenti heilu og höldnu á Flórída síðdegis í dag eftir að hafa farið í síðustu ferð sína út í geiminn en geimferjan heimsótti alþjóðlegu geimstöðina.

Discovery hefur flogið yfir 238 milljón kílómetra á 27 árum. Hún fór 39 sinnum út í geim og var þar samtals í 365 daga. Henni verður nú komið fyrir á safni þar sem almenningur getur skoðað ferjuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×