Segir krabbamein skárra en aðra erfiða sjúkdóma 15. febrúar 2011 19:45 „
Fyrst að drengurinn minn þurfti að veikjast af svona alvarlegum sjúkdómi þá þakka ég fyrir hann fékk krabbamein en ekki einhvern annan erfiðan sjúkdóm." Þetta segir móðir lítils drengs sem glímir við hvítblæði. Hún segir ástæðuna vera sterkt félag sem heldur vel utan um félagsmenn sína og styður. Alþjóðadagur krabbameinssjúkra barna er haldinn í dag en tilgangur hans er að vekja athygli á málefnum barna sem glíma við þennan illvíga sjúkdóm. Þennan sama dag fagnar Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna afmæli félagsins en það hefur verið leiðandi í bættum aðstæðum langveikra barna. Ragnheiður Edda Viðarsdóttir er móðir Emils Ágústs Þórissonar, þriggja ára drengs sem hefur í um ár þjáðst af bráðahvítblæði. Hún segir veikindi Emils einangra fjölskylduna mjög, þar sem reyna verði eftir fremsta megni að verja hann umgangspestum. Þá hafi hún og faðir Emils verið í sjálfstæðum rekstri þegar veikindin uppgötvuðust og þau því lítið sem ekkert verið tryggð fyrir áfalli sem þessu. Það sé martröð hvers foreldris að barnið þess þurfi að glíma við erfið veikindi. Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna nái þó að lina þá erfiðleika mjög með öflugum stuðningi og eftirfylgd. „Nokkrum dögum eftir að hann greindist kom Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri félagsins, til okkar og kynnti starf félagsins fyrir okkur. Við fengum ofboðslegan stuðning frá félaginu og félagsmenn hafa haldið mjög vel utan um sín börn og félagsmenn og hjálpað okkur í gegnum þetta allt saman," segir Ragnheiður Edda um fyrstu reynslu sína af starfi Styrktarfélagsins. Hún segir að fyrst Emil hafi á annað borð verið ætlað að glíma við alvarleg veikindi þakki hún fyrir að hann hafi fengið krabbamein en ekki annan sjúkdóm því þá hefði Emil ekki átt jafn sterkan bakhjarl. Styrktarfélagið bæði styðji félagsmenn sína og auki vitund þjóðarinnar um þennan erfiða sjúkdóm. Nánar má lesa um alþjóðlegan dag krabbameinssjúkra barna á síðu Styktarfélags krabbameinssjúkra barna á vefslóðinni skb.is
Mest lesið Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Stærra eldgos væntanlegt Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira