Innlent

Boðar stofnun samtaka Evrópusinnaðara miðjumanna

Hallur sagði sig úr Framsóknarflokknum í desember á síðasta ári eftir 25 ára starf. Hann var kosningastjóri flokksins í Reykjavík fyrir þingkosningarnar 2009.
Hallur sagði sig úr Framsóknarflokknum í desember á síðasta ári eftir 25 ára starf. Hann var kosningastjóri flokksins í Reykjavík fyrir þingkosningarnar 2009. Mynd/Róbert
„Ég hef á undanförnum klukkustundum fengið ótrúleg viðbrögð frá frjálslyndu, Evrópusinnuðu miðjufólki sem leitar eftir vettvangi fyrir sig. Vettvangi sem getur tekið á virkan þátt í framgangi aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu," segir Hallur Magnússon. Unnið sé að kanna grundvöll fyrir stofnun nýrra samtaka á miðju íslenskra stjórnmála sem hafi það markmið að vinna að vænlegum aðildarsamningi að Evrópusambandinu.

Fullt var út úr dyrum þegar fimm samtök Evrópusinna sameinuðu krafta sína undir merkinu Já Ísland í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Félagar í þessum samtökum vilja efla vandaða og upplýsta umræðu um Evrópusambandið og aðild Íslands að því. Fjallað var um fundinn í fréttum Stöðvar 2.

Um fundinn segir Hallur: „Nú hafa margvísleg samtök tekið höndum saman um að vinna að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Það vakti athygli mína og greinilega margra annarra að þar voru engin skilgreind samtök Evrópusinnaðs miðjufólks. Heldur engin samtök sem núverandi og fyrrverandi Framsóknarfólk - og annað frjálslynt miðjufólk gat samsamað sig við - nema gegnum stefnuna að klára aðildarviðræður að ESB."

Hallur á von á því að boðað verði til stofnfundar í næstu viku. Hann er þeirra skoðunar að sú málefnavinna sem fór fram innan Framsóknarflokksins á árunum 2001-2009 um Evrópumál geti nýst samtökunum vel. „Ég tel að sú faglega vinna geti nýst langt út fyrir hóp núverandi og fyrrverandi Framsóknarmanna og orðið grundvöllur að heilbrigðri umræðu meðal aðildarsinna - og þjóðarinnar - um aðildarviðræður að ESB."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×