Innlent

Enn leitað víða að Belga

Björgunarsveitamenn leita að Belga, búsettum í Noregi, á hálendinu.
Björgunarsveitamenn leita að Belga, búsettum í Noregi, á hálendinu.
Björgunarsveitamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar eru enn í víðtækri leit á Fimmvörðuhálsi að belgískum ferðamanni, sem þar er talinn slasaður.

Belgíumaðurinn, sem búsettur er í Noregi, lét vita af sér í nótt og sagðist hann þá vera slasaður á hné. Samband rofnaði hins vegar við manninn. Fjöldi björgunarsveitarmanna eru við leitina, sem og þyrla Landhelgisgæslunnar og sex hundar.

Veður á svæðinu er ágætt, skýjað og skyggni sæmilegt til leitar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×