Innlent

Játuðu rán í söluturn í Breiðholti

Þrír piltar á aldrinum 18 til 19 ára hafa játað aðild sína að ráni í söluturni í Breiðholti á síðastliðið þriðjudagskvöld.

Tveir piltanna fóru inn í fyrrnefndan söluturn vopnaðir sveðju og kúbeini og ógnuðu bæði starfsfólki og viðskiptavinum.

Þeir höfðu á brott með sér lítilræði af fjármunum en þriðji pilturinn var við bíl skammt frá vettvangi og hjálpaði þeim að komast undan.

Þremenninganna var leitað síðustu daga og það bar árangur í gær þegar þeir voru handteknir á Akureyri.

Piltarnir játuðu síðan aðild sína að málinu við yfirheyrslur í dag.

Um leið og málið telst upplýst vill lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakka starfsbræðrum á Akureyri fyrir veitta aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×